RYÐVÖRN
Tryggðu bílnum betra líf. WoolWax eða ullarvax er fullkomið efni til ryðvarnar. Það skapar lanólín-filmulag sem heldur raka og súrefni frá grunnmálmnum.
Þrátt fyrir að undirvagninn í öllum nýjum bílum sé ryðvarinn þegar þeir koma til landsins þarf að endurnýja ryðvörnina reglulega, mælt er með ekki sjaldnar en á 3 ára fresti.
Við þrífum öll óhreinindi af undirvagni bílsins áður en WoolWax efnið er borið á grindina, sílsana og undirvagninn.
Við ryðverjum alla hluti bifreiða, ekki bara undirvagninn. Allt eftir þínum óskum.
FERLI:
- Öll plöst, hlífar og varadekk tekin af
- Hjólaskálar og undirvagn háþrýstiþvegin
- þurrkunarferli
- Bíll ryðvarinn
- Plöst og hlífar sett undir aftur
- Ferlið tekur 2-3 virka daga
Ryðvörn er sprautað inn í föls, sílsa, hurðar, bretti innri sem ytri og á burðarbita og grind utan sem innan.
OPIÐ
Mánudaga - Föstudaga 08:00 - 17:00
Hádegishlé 13:00 - 14:00
STAÐSETNING
Smiðjuvegi 36, 200 kópavogi (Gul gata)
HAFÐU SAMBAND
555 3000
info@classicgarage.is
Efnið:
Lanólín efni / Umhverfisvænt / Leysiefnalaust
Efnið er alltaf virkt og smígur inn í glufur
WOOLWAX® þykknar og myndar gelfilmu
eftir að það hefur verið borið á.
Veitir sterka undirvagnsvörn fyrir ökutæki.
Í WOOLWAX efninu er ekkert sem þornar eða gufar upp.
WOOLWAX® er "hunangs" litað og er mjög hrein
vara í samanburði við aðrar vörur.
Láttu ullarvax vernda bílinn þinn gegn ryði og
tæringu á erfiðum vetrarmánuðum